Tuesday, April 21, 2009

Er enn hér

Náði ekki nema þremur æfingum í síðustu viku (þó tveimur með þjálfara) og einu hlaupi og er síðan búin að vera hálflasin og er enn með hálsbólgu. Komst aðeins á brettið í dag og var gjörsamlega dauð eftir 2.5-3 km, svitnaði bara við að stíga upp á brettið :( Svo nú er bara spurningin, tekur maður þátt á fimmtudaginn?? Örugglega auðveldara að hlaupa úti og kannski hægt að gíra sig upp í þetta en úff - smá valkvíði, líka af því að maður var búinn að ákveða þetta fyrir löngu...

r

1 comment:

Anonymous said...

Um að gera að skella sér! Þetta er algjört win/win. Ef þér gengur illa þá er það alltaf að veikindunum að kenna og ef þér gengur vel = frábært!