Friday, April 3, 2009

Leti í gangi

Síðustu tvo daga, magaverkir í gangi og slen og var bara heima í gær og gleymdi m.a.s. að armbeygjurútínuna mína! En tími í dag og svo verður maður að drattast um helgina þrátt fyrir afmæli því ekki gengur að hætta alveg. Maður má nú ekki missa sig í sukkið bara þótt það sé að koma sumar J En magaverkirnir áttu sér eftir allt saman eðlilegar mánaðarlegar skýringar svo núna er það bara harkan sex og halda áfram.

Verð að passa mig að detta ekki niður í hlaupunum en kannski var þessi hvíld bara ágæt þar sem ég var komin með smá verki framan á sköflungana, hef allavega eitthvað hvílt núna.

 

Kv. r

2 comments:

Anonymous said...

Vá er í nákvæmlega sama pakka... er búin að skrópa tvo daga í röð útaf heimsókn frá Rósu frænku. En nú verður bara tekið á því... sjáumst sveittar á brettunum í Laugum um helgina og tökum á því... eða jafnvel fara út ef veður leyfir!?!

Anonymous said...

já, nákvæmlega - engin miskunn, maður verður að halda áfram og ekki missa niður þetta litla sem maður er þó búinn að ná ;)