Wednesday, March 18, 2009

Hér sé stuð

 

Það er virkilega eins og það sé að koma vor! Ræktin gengur fínt, farið tvisvar að hlaupa í vikunni, reyndar inni í hádeginu en nú er stefnan að ná að taka 5 km á 30 mín eða skemur og vonandi kemur það fyrr en varir. Stefni á föstudaginn!! Svo er það bara æfing með þjálfa á morgun og svo baaaalll á laugardaginn, get ekki beðið! Reyni nú samt að fara í ræktina líka þann dag svo maður geti gætt sér eitthvað á gæðamatnum sem verður í boði. Dreg svo karlinn út að hlaupa í þynkunni á sunnudaginn áður en það verður náð í börnin, eða það er planið allavega. Bíðum og sjáum hvernig vikan verður! En – er allavega búin að ákveða það að vorið er komið J

 

Kv. r

1 comment:

Anonymous said...

Snilldar plan!!! Ohh er alveg sammála með vorið bráðum getur maður bara hjólað í vinnuna (það er c.a 40 mín workout fyrir mig!)
En sniðugt að stefna að einhverju ákveðnu km marki á 30 mín... held að ég taki þetta upp.... vantar nýtt markmiða prógram :)