Tuesday, March 10, 2009

Jæja vikan byrjuð

Og so far so good. Náði að komast út að hlaupa í gær og fer á lyftingaæfingu í dag ásamt mælingu sem ég hlakka ekki til að fara í, veit upp á mig skömmina L Núna er planið að taka þetta af alvöru – ekki stoppa og ætla að gera þetta seinna  heldur að ná jafnri yfirferð yfir þetta allt saman, vorið fer að koma og nóg að gera fyrir sumarið!

Það styttist óhugnlega lega í 5 km hlaupið sem ég var búin að ákveða að fara svo nú verð ég að vera dugleg að fara út og ég ætla að ná þessu sæmilega og enn og aftur lyfta, lyfta, lyfta. Er aðeins að reyna að sparka í rassinn á sjálfri mér hérna til að ná að ýta mér áfram, ekki veitir af. Vonandi fæ ég enn meira boost eftir að ég sé árangurinn úr mælingunum í dag og þær tölur sem þar koma, býst við að þær ýti mér aftur af stað L

 

Kv. r

2 comments:

Anonymous said...

Sko mína... er ennþá í tómu rugli... er er að reyna að koma mér af stað :)

Anonymous said...

pínu spark frá mér til þín!