Friday, February 6, 2009

Vá góð æfing

 

 

í hádeginu í dag. Fórum nokkrar saman í einn góðan hring og vá, maður var hálfskjálfandi á eftir. Eins og ég var ekki að nenna að fara af stað er þetta alltaf jafngott þegar að maður er búin. Sem er ágætt, vikan riðlaðist öll hjá mér, þjálfarinn breytti tímanum frá fim yfir í mið í vikunni, fór svo ekkert í gær en ef ég næ að fara á morgun eða sunnudag næ ég lágmarksmarkmiðinu sem er fjórum sinnum í viku. Jæja, plön mega stundum breytast ;) Rotast svo bara í kvöld þegar að maður loksins kemst heim til sín og helgin framundan, frekar busy samt með barnaafmæli og þess háttar en samt gott að geta eytt tíma með familiunni ;)

 

later, gater,

r.

2 comments:

Anonymous said...

hvað er málið með þennan þjálfara?!? Væri alveg komin með nóg að vera alltaf að breyta svona :)

Anonymous said...

Þetta var mikið hringl og algjörlega mér að kenna. Ég þurfti að breyta út af fundi og færði tímann þá fyrr um daginn en hann komst þá ekki og því var hann færður fram um einn dag ;) Kvarta svo sem ekkert þar sem við fáum "aðganginn" að þjálfaranum og prógröm án þess að þurfa að greiða fyrir þetta.