Tuesday, March 31, 2009

Þjálfun

Þar sem þjálfarinn okkar er ekkert við þessa vikuna kom það í minn hlut í þetta skiptið að setja saman prógram fyrir okkur í vinnunni sem er bara gaman. Ótrúlegt hvað það munar miklu að vera með einhvern með sér í þessu upp á lyftingarnar og æfingar og við púluðum sko veeel í þessum tíma. Svo tekur einhver önnur að sér næsta tíma en með góðu ætti ég að ná að lyfta þrisvar í þessari viku sem er bara gott. Síðan má nú vorið alveg fara að koma svo maður geti farið að fara almennilega út að hlaupa án þess að fjúka eða frjósa í hel! Er orðin frekar pirruð og vil fá vorið og hana nú!

Mataræði enn nokkuð gott svo þarf maður bara að passa sig um páskana, sem betur fer hef ég aldrei verið mikið fyrir páskaeggin en ég virðist þó eiga mikið auðveldara með að halda reglu þegar að ég er í vinnunni heldur en heima :S Þarf að vinna betur í þessu.

 

Kv. r

 

 

2 comments:

Anonymous said...

Hva bara orðin þjálfari?!? Er það ekki annars alltaf þannig í biggest looser.... þáttakenndur enda alltaf sem þjálfarar hehehe :)

Anonymous said...

róhóleg :D Ákváðum að skipta þessu á milli okkar svo við eyðum ekki fyrstu 10 mínútunum í að setja saman prógram og ákveða hvað við eigum að gera :p