Vaknaði snemma í morgun og fór í ræktina. Þegar að þangað var komið kom í ljós að helmingurinn af dótinu hafði verið skilinn eftir heima svo ég byrjaði snemma að vinna með þeirri ætlan að kíkja bara í ræktina eftir vinnu.
En ég er svooo þreytt núna að það verða þung skrefin í ræktina seinnipartinn. Vonandi drattast maður bara af stað þar sem planaður er góður matur í kvöld með góðum vinum.
L r
1 comment:
skelltu þér bara... þú átt eftir að hafa miklu meiri orku í kvöld fyrir vikið...
kv, ósk
Post a Comment